Umhirða gólfa er mikilvægur þáttur í fyrirbyggjandi viðhaldi, ásýnd og öryggi húsnæðis. Við höfum áralanga reynslu af gólfhreinsun og viðhaldi gólfa sem og sérverkefnum sem krefjast samstarfs og fagþekkingar.
Rannsóknir hafa sýnt að ásýnd gólfa hefur áhrif á upplifun fólks af fyrirtækjum og verslunum og að viðskiptavinir velja verslanir og þjónustufyrirtæki út frá hreinlæti þeirra.
Við sinnum viðhaldi gólfa og sérhæfðum þrifum fyrir fjölbýli, stofnanir, verslanir og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.
Við höfum áratuga reynslu af viðhaldi og meðhöndlun á gólfum. Fagþekking er grunnurinn að góðum árangri.